Lög og siðareglur
Lög Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum
1. gr.
Nafn félagsins er "Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum" og skal skammstöfun þess vera FLH. Aðsetur þess og varnarþing er á Austurlandi.
2. gr.
Hlutverk félagsins skal vera, að stuðla að eftirfarandi:
- Að leiðsögn með hreindýraveiðum verði faglegt og sérhæft starf.
- Að hreindýraveiðar á Íslandi verði stundaðar af fagmennsku og virðingu fyrir bráðinni og umhverfinu.
- Að þjónusta leiðsögumanna við hreindýraveiðar verði eftirsótt og arðsöm atvinnugrein.
- Að vera málsvari félagsmanna útávið og gagnvart stjórnvöldum.
- Að aðstoða stjórnvöld við mótun og stefnumörkun í þeim málum sem varða hreindýraveiðar.
3. gr.
Félagið setur félagsmönnum skyldur samkvæmt landslögum og reglum um hreindýraveiðar eins og þær eru á hverjum tíma.
4. gr.
Leiðsögumenn með hreindýraveiðum skulu starfa eftir lögum og siðareglum félagsins eins og þau eru hverju sinni, þar sem virðing fyrir náttúru og bráð er í fyrirrúmi.
5. gr.
Félagar geta þeir einir orðið sem réttindi og starfsleyfi hafa, sem leiðsögumenn með hreindýraveiðum.
6. gr.
Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins og skal sú upphæð ákveðin á aðalfundi.
Gjalddagi árgjalds er 1. janúar og greiðist þá árgjald fyrir það ár. Eindagi er 1. febrúar.
Hafi félagsmaður ekki greitt árgjald sitt fyrir aðalfund, missir hann atkvæðisrétt og kjörgengi á þeim fundi ásamt öðrum félagsréttindum.
Skuldi félagsmaður árgjald, skal stjórnin tilkynna honum, er þrír mánuðir er liðnir frá gjalddaga síðasta árgjalds, að hann falli af félagaskrá, standi hann ekki skil á gjöldum sínum innan eins mánaðar.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og miðast við áramót.
7. gr.
Stjórn félagsins er heimilt að víkja mönnum úr félaginu eftir ítrekuð brot á lögum og siðareglum sem greind eru í 3. og 4. gr. Áður skal þess gætt að virtur sé andmælaréttur viðkomandi.
Brottrekinn félagsmaður getur áfrýjað slíkri ákvörðun til aðalfundar.
II. HLUTI - Aðalfundur og félagsfundir
8. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert.
Aðalfund skal boða með a.m.k. 10 daga fyrirvara, bréflega, með tölvupósti eða með auglýsingu í a.m.k. einu dagblaði.
(Samkvæmt tillögu sem samþykkt var samhljóða á aðalfundi FLH 2010 var fyrirvara á fundarboði aðalfundar breytt úr a.m.k. 4 vikum í a.m.k 10 daga.)
Á aðalfundi ræður afl atkvæða.
9. gr.
Á aðalfundi skal stjórn félagsins gefa skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári og skulu reikningar félagsins hafa legið frammi, áritaðir af skoðunarmönnum og aðgengilegir félagsmönnum til athugunar á þeim stað sem stjórnin ákveður í tvær vikur fyrir aðalfund.
Bókhald og reikningar félagsins skulu skoðaðir af löggiltum endurskoðanda áður en stjórn leggur þá fyrir skoðunarmenn sem kjörnir eru á aðalfundi.
10. gr.
Þessi eru störf aðalfundar:
- Setning fundar.
- Kosning fundarstjóra.
- Kosning fundarritara.
- Skýrsla stjórnar.
- Starfsnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar sbr. 12. gr.
- Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
- Ákvörðun árgjalds.
- Önnur mál.
- Fundargerð lesin og borin undir atkvæði.
- Fundarslit.
11. gr.
Til almennra félagsfunda skal boðað þegar sérstök þörf þykir að dómi meirihluta stjórnar eða helmingur félagsmanna óska þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Stjórn skal halda félagsfund ekki síðar en 15. dögum frá því að henni barst um það beiðni skv. 2. mgr. 12. gr.
Almennan félagsfund skal boða með a.m.k. viku fyrirvara.
Fundir teljast löglegir ef til þeirra er boðað með löglegum hætti.
III. HLUTI - Stjórn og starfsnefndir
12. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn sem kosnir eru á aðalfundi til tveggja ára í senn; formaður og varaformaður kosnir sérstaklega til þeirra embætta. Auk þeirra þrír meðstjórnendur.
Í varastjórn skal kjósa tvo menn.
Stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti en fram kemur í 1. málsgrein 12. greinar.
Verksvið stjórnarmanna skulu m.a. vera eftirfarandi:
Formaður: Er ábyrgur fyrir daglegum rekstri félagsins. Staðgengill hans er varaformaður. Formaður boðar stjórnarfundi og stýrir þeim. Hann einn fer með prókúru félagsins.
Gjaldkeri: Er ábyrgur fyrir að regla sé á bókhaldi félagsins. Staðgengill hans er annar meðstjórnenda samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Ritari: Er ábyrgur fyrir að efni funda sem haldnir eru á vegum félagsins sé skilmerkilega skráð í fundargerðaform, þannig að til verði heimild um sögu og ákvarðanir félagsins. Staðgengill hans er annar meðstjórnenda samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Hver maður í stjórn og varastjórn skal kosinn til tveggja ára. Formaður, ritari og meðstjórnandi auk annars varamanns annað árið, en gjaldkeri, varaformaður og einn varamaður hitt árið.
Stjórnin hefur á hendi allan rekstur félagsins á milli aðalfunda.
Á stjórnarfundi gildir vægi atkvæða. Falli atkvæði jafnt, ræður atkvæði formanns.
Til þess að stjórnarfundur sé löglegur, þarf meirihluti stjórnar að vera á fundi.
13. gr.
Ekki síðar en fjórum vikum eftir aðalfund skal stjórn hafa sent út til félagsmanna fundargerð aðalfundar auk áætlunar um starfsemi félagsins fyrir komandi starfsár og hafa lokið skipan mála í nefndir og til annarra þeirra verkefna sem henni eru falin á aðalfundi. Í áætlun skal koma fram stefna og markmið stjórnar ásamt rekstraráætlun til næsta aðalfundar.
14. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
15. gr.
Innan félagsins skulu vera eftirtaldar starfsnefndir sem stjórn skipar til eins árs og skulu í hverri sitja a.m.k þrír menn. Verkefni þeirra eru eftirtalin:
- a) Siðanefnd; semji og endurskoði siðareglur félagsins og fjalli ásamt stjórn, um brot á þeim.
- b) Fræðslunefnd; semji og taki þátt í mótun námsefnis og leiðbeininga fyrir núverandi og væntanlega félagsmenn. Sjái um og skipuleggi námskeiðahald á vegum félagsins.
- c) Laganefnd; starfi að endurskoðun laga félagsins og samningu reglna þess í takt við landslög og reglugerðir á hverjum tíma, hafi nána samvinnu við fræðslunefnd vegna útgáfu og upplýsingaveitu til félagsmanna um reglugerðabreytingar.
- d) Hornamælinganefnd; sér um móttöku og mælingar á Íslenskum hreindýrskrúnum og heldur utan um skráningar á þeim. Mælt er eftir fyrirmynd Boon and Crockett Club.
Auk þess getur stjórn sett á laggir starfsnefndir ár hvert og falið þeim sérverkefni eftir eðli mála.
Nefndir skulu starfa milli aðalfunda.
Nefndir bera ábyrgð gagnvart stjórn og skulu gera grein fyrir störfum sínum á aðalfundi.
16. gr.
Stjórn félagsins er heimilt að veita viðurkenningar fyrir störf í þágu félagsins.
Um viðurkenningar og heiðursfélaga skal setja reglur sem samþykkja skal á aðalfundi.
IV. HLUTI - Lagabreytingar
17. gr.
Tillögur til lagabreytinga skal afhenda stjórn félagsins eða laganefnd með skriflegum hætti fyrir 1. janúar. Þær tillögur skulu kynntar í aðalfundarboði.
Lögum félagsins verður aðeins breytt með samþykki 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi.
V. HLUTI - Ýmislegt
18. gr.
Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins, þótt hann hverfi úr félaginu eða félaginu verði slitið.
Enginn félagsmaður ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins með öðru en árgjaldi sínu.
19. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi og þá með samþykki 2/3 félagsmanna.
Fundur sá sem samþykkir félagsslit með lögmætum hætti, kveður á um hvernig ráðstafa skuli eignum félagsins og skuldum.
20. gr.
Lög þessi öðlast gildi við samþykkt þeirra á stofnfundi félagsins á Egilsstöðum 14. febrúar 2003.
Ákvæði til bráðabirgða sem falla niður að loknu fyrsta starfsári:
- Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 12. gr. skal á stofnfundi kjósa varaformann, meðstjórnanda og varamann til eins árs.
- Á fyrsta aðalfundi eftir stofnfund skal stjórn leggja fram drög að siðareglum félagsins og skal siðanefnd hafa það hlutverk á fyrsta starfsári að semja þau.
Siðareglur leiðsögumanna
1. gr.
Leiðsögumaður gætir þess að lög og reglur um hreindýraveiðar séu í heiðri hafðar. Fari viðskiptavinur eða umboðsaðili hans fram á athæfi sem ekki samrýmist lögum eða reglugerðum ber honum að hafna því og tilkynna það jafnframt til starfsmanns Umhverfisstofnunar.
2. gr.
Leiðsögumaður skal yfirfara tilskilin leyfi viðskiptavinar til hreindýraveiða. Verði samkomulag um að leiðsögumaður afsali sér viðskiptavini til annars leiðsögumanns skal það tilkynnt eins fljótt og auðið er til starfsmanns Umhverfisstofnunar.
3. gr.
Leiðsögumaður gætir þess að meðferð skotvopna sé örugg og lögleg.
- Hann sér til þess, að vopn séu ekki flutt hlaðin.
- Að ekki sé hlaðið fyrr en í skotfæri er komið.
- Að vopn og vímuefni eiga enga samleið.
- Að ekki sé skotið á dýr nema með hreint og öruggt baksvið.
4. gr.
Leiðsögumaður beitir ekki veiðiaðferðum sem valdið geta bráðinni óþarfa kvölum.
Hann leyfir ekki að hreindýr sé skotið nema hann telji yfirgnæfandi líkur á því að það falli við fyrsta skot. Særist dýr gerir hann allt sem í hans valdi stendur til að fella það fljótt og örugglega.
5. gr.
Leiðsögumaður sýnir öðrum leiðsögumönnum og viðskiptavinum þeirra háttvísi.
Hann er fús að veita upplýsingar um veiðarnar sem geta orðið öðrum að gagni.
Hann hefur samráð við þá um nýtingu veiðisvæðisins.
Séu fleiri en einn hópur veiðimanna um sömu hjörð hafa þeir forgang sem fyrstir komu að. Sé vafamál um hver hafi forgang í hjörð komast leiðsögumenn að samkomulagi um tilhögun veiðanna.
6. gr.
Leiðsögumaður skal tilkynna sig til starfsmanns UST á og af veiðum ásamt árangri veiðanna. Einnig ber honum að tilkynna um óhöpp svo sem slysaskot eða annað það sem úrskeiðis kann að fara í veiðiferð.
7. gr.
Leiðsögumanni ber að gæta þess að meðferð og nýting bráðar sé eins góð og kostur er hverju sinni. Hann gætir þess að bráð sé flutt þannig að öðrum sé ekki til ama.
8. gr.
Leiðsögumaður gætir þess að farið sé að lögum og reglum um akstur í óbyggðum.
Hann gætir þess að ekki séu skildar eftir umbúðir og annað rusl í náttúrunni.
9. gr.
Leiðsögumanni ber að halda sér í góðri líkamlegri þjálfun. Hann æfa skotfimi og kynna sér vel riffilskot ásamt eiginleikum mismunandi kúlna.
Hann leiðbeinir viðskiptavini sínum um val á heppilegum löglegum skotfærum við hreindýraveiðar.
10. gr.
Leiðsögumaður sér til þess að veiðikort séu rétt og skilmerkilega útfyllt að lokinni veiðiferð, og að þar séu gefnar þær upplýsingar sem beðið er um.